Lærðu að elska Microsoft: Þrjú spennandi námskeið í desember um CRM og SharePoint
Í desember heldur Skýrr þrjú spennandi námskeið um Microsoft-lausnirnar Office SharePoint og Dynamics CRM. Námskeiðin eru jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Microsoft Office SharePoint er alhliða samskiptalausn fyrir upplýsingamiðlun og skjalastjórnun innan vinnustaða. Microsoft Dynamics CRM fyrir viðskiptatengsl heldur utan um öll samskipti við viðskiptavini og er ein vinsælasta CRM-lausn veraldar. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru þaulreyndir ráðgjafar hjá viðskiptalausnum Skýrr. Ráðgjafarnir eru þau Bjarmi Guðlaugsson, Erna Margrét Arnarsdóttir, Margrét V. Helgadóttir, Sólrún Viðarsdóttir og Þórhildur Hansdóttir Jetzek.


